|
7.11.2019 Veiğitölur sumariğ 2019 Nú liggja fyrir veiðitölur fyrir síðastliðið sumar. Alls
veiddust 1559 fiskar í Litluá en það er óveruleg breyting frá fyrra ári. Í
Skjálftavatni veiddust 688 fiskar sem er um 4% minna en á síðasta ári. Á
vatnasvæðinu veiddust samtals 2247 fiskar en á síðasta ári veiddust 2281 fiskar
og því er því um óverulega breytingu að ræða á milli ára.
Lesa meira
11.7.2019 Veiğitölur í lok júní 2019 Veiði
hefur gengið vel í Litluá það sem af er sumri, eins og undanfarin ár. Þann 27.
júní höfðu veiðst alls 1081 fiskar á vatnasvæðinu, 886 í Litluá og 195 í
Skjálftavatni. Þetta er um 8% meiri veiði en var á sama tíma á síðasta ári. Í
Litluá veiddust 743 urriðar og 143 bleikjur en í Skjálftavatni veiddust 26
urriðar og 169 bleikjur. Talsvert er af vænum fiski, bæði í Litluá og Skjálftavatni.
2.4.2019 Flott opnun í Litluá 2019 Fyrsti
veiðidagur í Litluá var í gær, 1. apríl. Dagurinn var gríðarlega góður þó jörð
væri alhvít og snjóaði svolítið fram undir hádegið. Mikið líf reyndist vera í
ánni og fiskurinn vel á sig kominn eftir veturinn. Þennan fyrsta veiðidag komu
148 fiskar á land (og út í aftur), margir yfir 70cm! Þetta verður að teljast óhemju
góður afli á 5 stangir. Í vatninu fengust fínir fiskar en það hefur ekki alltaf
verið svo á þessum árstíma. Á meðfylgjandi mynd er Stefán Hrafnsson með einn
vænan en Stefán hefur verið í opnunarholli í Litluá í mörg undanfarin ár.
Fleiri fréttir 28.3.2019 - Laus veiğileyfi 2019 komin í vefsölu. 24.11.2018 - Veiğitölur sumariğ 2018 14.11.2017 - Veiğitölur sumariğ 2017
|
|
FRÉTTIR