|
30.12.2015 Veiđitölur 2015 Nú
liggja fyrir veiðitölur fyrir síðastliðið sumar. Alls veiddust 1236 fiskar í
Litluá en það er talsverður samdráttur frá síðasta ári þá veiddust 1654 fiskar.
Í Skjálftavatni veiddust 766 fiskar sem er einnig samdráttur frá síðasta ári en
þá veiddust 1286 fiskar og var það metár í Skjálftavatni. Á vatnasvæðinu
veiddust samtals 2002 fiskar en á síðasta ári veiddust 2940 fiskar. Þetta er um
32 % samdráttur á vatnasvæðinu . Eins og undanfarin ár settu margir veiðimenn í
mjög væna fiska í sumar, þrátt fyrir að heildarveiðin hafi verið minni. Helsta
ástæðan fyrir samdrætti í veiði virðist vera slæmt tíðarfar á vormánuðum og
fram eftir sumri. Önnur skýring gæti verið að skráningu í veiðibækur sé
ábótavant.
Lesa meira
19.7.2015 Veiđitölur til 4. júlí 2014 Veiði hefur gengið ágætlega í Litluá og Skjálftavatni fyrstu
þjá mánuði veiðitímans þrátt fyrir nokkuð kalt veðurfar og rysjótt. Hefur vorið
í ár verið gjörólíkt vorinu 2014 sem var sérstaklega gott veðurfarslega. Frá
upphafi veiðitímans 1. apríl til 4. júlí hafa veiðst 677 fiskar í Litluá og 205
fiskar í Skjálftavatni eða 882 fiskar alls á vatnasvæðinu. Þetta er lítillega
minni heildarveiði en á svipuðum tíma á síðasta ári og er minni sókn vegna
óhagstæðara veðurfars líklegasta skýringin. Talsvert hefur veiðst af vænum
fiskum, t.d. upp í 75 cm urriða og 72 cm bleikju. Hátt hlutfall aflans er yfir 50
cm.
Lesa meira
17.5.2015 Skráning í veiđibćkur Nú í
upphafi veiðitímabilsins er rétt að huga að skráningu afla í veiðibækur. Rétt
skráning aflans í veiðibækur er mjög mikilvæg fyrir alla sem að veiðimálum
koma. Þetta á ekki síður við þó veitt sé samkvæmt veiða-sleppa aðferð. Flestir
veiðimenn hafa áhuga á að vita hvernig aflabrögð hafa verið í ánni sem þeir eru
að fara að veiða, á hvað er veitt, tegundarsamsetningu o.s.frv. Veiðimálastofnun
fylgist með þróun veiðinnar í ánni frá ári til árs og er þá mikilvægt að
upplýsingar séu sem nákvæmastar og réttastar. Það verður að segjast eins og er
að skráning í veiðibækur undanfarin ár hefur ekki verið nægjanlega góð og
langar okkur leigutaka að biðja veiðimenn að vanda skráningu á núverandi
veiðitímabili. Það ætti að vera sjálfsagður hlutur að veiðimaður taki sér tíma
til lengdarmælingar og skráningar upplýsinga um hvern veiddan fisk, sama hversu margir fiskar eru veiddir.
Lesa meira
Fleiri fréttir 12.4.2015 - Opnun 2015 14.3.2015 - Nýtt veiđikort 15.2.2015 - Stórfiskar hafa vetursetu. 1.1.2015 - Gleđilegt nýtt veiđiár
|
|
FRÉTTIR
24.11.2018 Veiđitölur sumariđ 2018  Nú liggja fyrir veiðitölur fyrir síðastliðið sumar. Alls
veiddust 1566 fiskar í Litluá en það er um 9% aukning frá fyrra ári. Í
Skjálftavatni veiddust 715 fiskar sem er um 12% samdráttur frá síðasta ári en
þá veiddust 817 fiskar. Á vatnasvæðinu veiddust samtals 2281 fiskar en á
síðasta ári veiddust 2255 fiskar og því er því um lítilsháttar aukningu að
ræða. Enginn skortur var á vænum fiskum í Litluá og Skjálftavatni frekar en undanfarin
ár. Þannig voru um 40 fiskar yfir 70 cm og þar af þrír stærri en 80 cm og sá
stærsti var 82 cm eða um 6 kg skv. vörpunartöflum.
Lesa meira
|